Einmitt Special #7 Menn eins og við með Sir Arnari Gauta
Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

Einmitt Special #7 Menn eins og við með Sir Arnari Gauta

Feb 23, 2026
1:54:54
-(0)

About this episode

Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við fá þeir Baldur og Einar til sín hönnuðinn og lífskúnstnerinn Sir Arnar Gauta í einlægt og skemmtilegt spjall. Arnar hefur verið nátengdur tísku- og hönnunarheiminum frá því seint á síðustu öld og hefur sett mark sitt á fjölda glæsilegra veitingastaða og hótela með innanhússhönnun sinni. Hann er jafnframt þekktur fyrir ástríðu sína fyrir stíl og má með sanni kalla hann einn helsta sendiherra Ralph Lauren Polo á Íslandi. Í þættinum fara þeir yfir ferilinn, fagurfræðina og áhrifin – en láta ekki þar við sitja. Arnar gefur hreinskilið álit sitt á: • Skinni á gallabuxum – snilld eða synd? • Cargo-buxur – tímalaus praktík eða tískuslys? • Og hvort Dolce & Gabbana sé raunhæfur kostur fyrir miðaldra menn. Þetta er léttur, beinskeyttur og afar skemmtilegur þáttur þar sem stíll, sjálfsmynd og smá hégómi mætast í góðu jafnvægi. Alls ekki leiðinlegt hlustunarefni.

Comments

Rate this episode

Episode Details

Author
Einar Bárðarson
Show Type
full
Audio Format
audio/mpeg

We use analytics

We use Umami, a privacy-friendly analytics tool, to understand how visitors use this site. No personal data is collected and no data leaves our EU servers. You can accept or decline below. Privacy Policy