

Einmitt special #9 Menn eins og við "Að rækta vinahópinn"
About this episode
Í nýjasta þættinum af Menn eins og við ræða strákarnir um mikilvægi þess að rækta vinahópinn – hópinn sem þú hringir í þegar allt fer í apaskít, hópinn sem hlær með manni, stappar í mann stálinu og gefur ráð þegar þeirra er þörf. Baldur kemur svo með óvænta uppgötvun og segir okkur hver klippir Kylie Jenner – og hvernig það virkar. En stærri spurning vaknar líka: má nota sömu rakvél á andlitið og pungsann? Baldur hefur líka uppgötvað flottasta leigubílinn í Reykjavík og hefur varla keyrt í vinnuna síðan. Ekki nóg með það – hann er einnig búinn að finna besta bílasnyrtistað í borginni, þrátt fyrir að hafa leitað víða. Þá eru þeir félagar enn í sárum eftir að Vala Matt skammaði þá í vikunni, og fara yfir allt málið frá A til Ö. Allt þetta og meira til í nýjasta þættinum af Menn eins og við.
Comments
Rate this episode
Episode Details
- Show Type
- full
- Audio Format
- audio/mpeg