#0055 Anna Hildur Hildibrandsdóttir
Snæbjörn talar við fólk

#0055 Anna Hildur Hildibrandsdóttir

Jun 3, 2021
3:10:13
E55
-(0)

About this episode

S01E55 – Anna Hildur Hildibrandsdóttir er ekki þjóðþekkt andlit en áhrif vinnu hennar á íslenskt menningarlíf eru gífurleg. Hún tók þátt í að koma ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, á legg sem opnaði fyrir gífurlega verðmætasköpun í íslenskum tónlistariðnaði, hún var lengi fréttaritari í London og nú nýlega var frumsýnd hennar fyrsta heimildarmynd „A Song Called Hate“ sem fjallar um ferð hljómsveitarinnar Hatara í Eurovision í Ísrael árið 2019. Nú í vetur flutti hún heim til Íslands eftir langa búveru í Bretlandi og hóf kennslu við Háskólann á Bifröst, stofnaði listþróunarfyrirtækið Glimrandi ásamt eiginmanni sínum og er í stjórn sumarnámskeiðsins Tungumálatöfra, en þar fá fjöltyngd börn og unglingar tækifæri til að rækta íslenskuna í gegnum listsköpun á Ísafirði. Anna Hildur er hvergi nærri hætt og nýtur þess að takast á við nýjar áskoranir, en nú þegar hún nálgast sextugt er hún loksins búin að læra að segja nei. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Sumartilboðið er komið í Síminn Pay appið! Galaxy Tab A7 4G á 35.994,- kr. staðgreitt, lækkað verð frá 59.990,- kr.! Eftir hverju ertu að bíða? https://www.siminn.is/siminn-pay – Hljóðkirkjan býður upp á 6 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum, Nei hættu nú alveg - Spurningaleikur Villa naglbíts líka á föstudögum og Listamenn á laugardögum.

Comments

Rate this episode

Episode Details

Author
Hljóðkirkjan
Show Type
full
Audio Format
audio/mpeg

We use analytics

We use Umami, a privacy-friendly analytics tool, to understand how visitors use this site. No personal data is collected and no data leaves our EU servers. You can accept or decline below. Privacy Policy