

Tryggvi Leifur Óttarsson og Ingvar Þór Jóhannesson skákblaðamaður
About this episode
Gestir skákþáttarins eru þeir Tryggvi Leifur Óttarsson formaður Taflfélags Snæfellsbæjar (og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fiskimarkaðar Íslands nú búsettur í Svíþjóð) og Ingvar Þór Jóhannesson og landsliðsþjálfari kvenna í skák. Farið verður yfir fjölmennt og vel skipað minningarmót um Hrafn Jökulsson og Ottó Árnason sem fram fór í Ólafsvík um síðustu helgi. Einnig verður Íslandsmótinu í skák, sem hefst á mánudaginn næstkomandi, gerð góð skil en mótið í ár verður eitt það sterkasta í sögu Íslandsmótanna. Af tólf keppendum eru átta stórmeistarar en þeirra á meðal er Hannes Hlífar Stefánsson sem er þrettánfaldur Íslandsmeistari í skák.
Comments
Rate this episode
Episode Details
- Author
- Útvarp Saga
- Show Type
- full
- Audio Format
- audio/mpeg